top of page
Search


Sviðsmyndahelgin 2026
Helgin 2.-4. október var árlega sviðsmyndahelgin haldin! Við viljum byrja á því að þakka ótrúlegu sviðsmyndar-undirnefndinni okkar fyrir hjálpina. Við byrjuðum eftir skóla á föstudaginn að sækja parket, masónít plötur og annað sem vantaði. Síðan var það bara strax að byggja. Allt í allt byggðum við 24 veggi, lögðum 70 fermetra af parketi og máluðum og veggfóðruðum eins og enginn var morgundagurinn! Helgin gekk eins og í sögu og erum sjúklega ánægð með nýja lookið!

Listó
Oct 61 min read


Eyjaferðin 2026!
Helgina 12.-13. september fór Listó nefndin ásamt leikhóp í sína árlega Vestmanneyja ferð! Byrjuðum ferðina á góðu sundi, síðan upp í hús að græja okkur og fórum síðan öll saman út að borða á Gott. Eftir það fórum við aftur upp í hús þar sem allir skemmtu sér vel og fallega. Daginn eftir átti Kári Hlíðberg okkar afmæli og þá var gerður góður afmælis-bröns. Ferðin endaði á því að Dagur og Aron misstu af ferjunni og þurftu að fara seinna heim.

Listó
Sep 131 min read


Listó leikhópur 2026
Við tilkynntum leikhópinn í vikunni og í honum eru: Agla Björk Egilsdóttir Aron Elvarsson Bjarki Þór Ársælsson Emilía Álfsól Gunnarsdóttir Erla Ólafsdóttir Halldór Ingi Hildur Óskarsdóttir Jón Kristófer Królason Kári Hlíðberg Kolfinna Orradóttir Tjaldur Norðfjörð Einnig tilkynntum við aðstoðarleikstjórana: Arna Sif Jóhannsdóttir Benni Melsted Til hamingju öll! Við hlökkum til að hefja þetta skemmtilega ferli saman!

Listó
Aug 291 min read


Fyrsta leiklistarnámskeiðið í sjö ár!
Í haust tókum við upp gamla og góða hefð þegar Listó-leiklistarnámskeiðið var haldið á ný eftir sjö ára hlé! Námskeiðið hefur verið haldið margoft í gegnum tíðina og gefið nemendum Verzló tækifæri til að hita upp fyrir leiklistarprufurnar. Hefðin tók þó pásu í kjölfar COVID-19 en í ár var loksins kominn tími til að endurvekja hana. Við fengum þau Kötlu Njálsdóttur og Mikael Kaaber til að sjá um kennsluna og fóru námskeiðin fram dagana 19. og 20. ágúst. Alls mættu um 170 nemen

Listó
Aug 201 min read
bottom of page

