top of page

Sviðsmyndahelgin 2026

Oct 6
1 min read

Helgin 2.-4. október var árlega sviðsmyndahelgin haldin! Við viljum byrja á því að þakka ótrúlegu sviðsmyndar-undirnefndinni okkar fyrir hjálpina. Við byrjuðum eftir skóla á föstudaginn að sækja parket, masónít plötur og annað sem vantaði. Síðan var það bara strax að byggja. Allt í allt byggðum við 24 veggi, lögðum 70 fermetra af parketi og máluðum og veggfóðruðum eins og enginn var morgundagurinn! Helgin gekk eins og í sögu og erum sjúklega ánægð með nýja lookið!

1 Comment


mariabjarta
6 days ago

Skemmtilegasta helgi í heimi!!!!!!!😀

Like
bottom of page