Fyrsta leiklistarnámskeiðið í sjö ár!
Aug 20
1 min read
Í haust tókum við upp gamla og góða hefð þegar Listó-leiklistarnámskeiðið var haldið á ný eftir sjö ára hlé! Námskeiðið hefur verið haldið margoft í gegnum tíðina og gefið nemendum Verzló tækifæri til að hita upp fyrir leiklistarprufurnar. Hefðin tók þó pásu í kjölfar COVID-19 en í ár var loksins kominn tími til að endurvekja hana.
Við fengum þau Kötlu Njálsdóttur og Mikael Kaaber til að sjá um kennsluna og fóru námskeiðin fram dagana 19. og 20. ágúst. Alls mættu um 170 nemendur og var frábær stemning á báðum námskeiðunum. Við erum ótrúlega ánægð með hversu vel tókst til og vonum að þessi skemmtilega hefð sé komin til að vera!






So fun!!!