Helgin 2.-4. október var árlega sviðsmyndahelgin haldin! Við viljum byrja á því að þakka ótrúlegu sviðsmyndar-undirnefndinni okkar fyrir hjálpina. Við byrjuðum eftir skóla á föstudaginn að sækja parket, masónít plötur og annað sem vantaði. Síðan var það bara strax að byggja. Allt í allt byggðum við 24 veggi, lögðum 70 fermetra af parketi og máluðum og veggfóðruðum eins og enginn var morgundagurinn! Helgin gekk eins og í sögu og erum sjúklega ánægð með nýja lookið!
Helgina 12.-13. september fór Listó nefndin ásamt leikhóp í sína árlega Vestmanneyja ferð! Byrjuðum ferðina á góðu sundi, síðan upp í hús að græja okkur og fórum síðan öll saman út að borða á Gott. Eftir það fórum við aftur upp í hús þar sem allir skemmtu sér vel og fallega. Daginn eftir átti Kári Hlíðberg okkar afmæli og þá var gerður góður afmælis-bröns. Ferðin endaði á því að Dagur og Aron misstu af ferjunni og þurftu að fara seinna heim.
Við tilkynntum leikhópinn í vikunni og í honum eru: Agla Björk Egilsdóttir Aron Elvarsson Bjarki Þór Ársælsson Emilía Álfsól Gunnarsdóttir Erla Ólafsdóttir Halldór Ingi Hildur Óskarsdóttir Jón Kristófer Królason Kári Hlíðberg Kolfinna Orradóttir Tjaldur Norðfjörð Einnig tilkynntum við aðstoðarleikstjórana: Arna Sif Jóhannsdóttir Benni Melsted Til hamingju öll! Við hlökkum til að hefja þetta skemmtilega ferli saman!